Kviðdómur í máli Lindsay Clancy hefur ekki enn komist að niðurstöðu um sakhæfi hennar. Clancy er ákærð fyrir að hafa myrt þrjú börn sín árið 2023.Málið hefur vakið töluverða athygli um allan heim og hafa milljónir hafa fylgst með réttarhöldunum í beinni útsendingu.Kviðdómur tilkynnti dómara í dag að ekki hafi enn náðst að komast að niðurstöðum um sakhæfi Clancy. Dómari biðlaði þó til kviðdóms um að reyna áfram að komast að einróma niðurstöðu. EKKI AÐEINS SPURNING UM SEKT EÐA SAKLEYSI Málið hefur ekki aðeins vakið spurningar um sekt eða sakleysi Clancy heldur einnig umræðu um geðheilbrigðisþjónustu nýbakaðra mæðra í Bandaríkjunum og hvort heilbrigðiskerfið hafi mögulega brugðist henni.Clancy eignaðist þrjú börn með eiginmanni sínum Patrick Clancy: Coru, 5 ára, Dawson, 3 ára, og Callan, 8