Von der Leyen væntanleg til Grænlands

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, kemur til Grænlands í fylgd með Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, á sunnudag. Stefnt er að því að undirrita yfirlýsingu um aukið samstarf Evrópusambandsins og Grænlands. Sambandið hefur lagt til að stuðningur við Grænland verði tvöfaldaður á sjö ára tímabili frá 2028.Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnar Grænlands, segir í yfirlýsingu að hann hlakki til heimsóknarinnar. ESB hafi stutt við Grænlendinga á umbrotatímum og brugðist á jákvæðan hátt við viðleitni þeirra til aukins samstarfs.Mikið hefur mætt á stjórnvöldum á Grænlandi og í Danmörku vegna ítrekaðra yfirlýsinga Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að hann ætli sér að ná yfirráðum yfir Grænlandi.Von der Leyen hefur áður komið til Grænlands. Í mars 2024 opnaði
Von der Leyen væntanleg til Grænlands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd