„Við höfum beðið eftir þessum degi í áratugi“

Frá og með deginum í dag mega allir gefa blóð óháð kyni eða kynhneigð. Hingað til hafa samkynhneigðir karlar á Íslandi ekki mátt gefa blóð þar sem þeir voru flokkaðir í áhættuhóp með tilliti til blóðgjafar.„Við höfum beðið eftir þessum degi í áratugi,“ segir Albert Eiríksson um tímamótin. Fréttastofa fylgdi þeim Alberti og Bergþóri Pálssyni í Blóðbankann í dag.Nýtt einstaklingsbundið áhættumat gerir öllum kleift að gefa blóð, óháð kyni eða kynhneigð. Hingað til hafa samkynhneigðir karlar ekki mátt gefa blóð hér á landi. „Þetta er sannkallaður gleðidagur,“ segir maður sem heimsótti Blóðbankann í dag.Í fyrstu heimsókn í Blóðbankann tekur hjúkrunarfræðingur á móti blóðgjöfum og fer yfir spurningar um þætti sem hafa áhrif á blóðgjöf, þar á meðal heilsufar, lyfjanotkun, ferðalög, húðflúranir og
„Við höfum beðið eftir þessum degi í áratugi“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd