Sigríður Þorvaldsdóttir er látin

Sigríður Þorvaldsdóttir, leikkona og leikstjóri, er látin 85 ára að aldri.Sigríður fæddist í Reykjavík, dóttir Þorvaldar Steingrímssonar og Ingibjargar Halldórsdóttur. Hún útskrifaðist úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og varð hárgreiðslumeistari nokkrum árum síðar. Hún stundaði framhaldsnám í leiklist í Hollywood og var fastráðin við Þjóðleikhúsið eftir heimkomu frá Bandaríkjunum.Hún var um langt skeið ein ástsælasta leikkona landsins og lék stór hlutverk á sviði og í sjónvarpi. Eiginmaður Sigríðar var Lárus Sveinsson og eignuðust þau þrjár dætur.
Sigríður Þorvaldsdóttir er látin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd