Varðhald framlengt í Straumsvíkurmáli

Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í dag gæsluvarðhald yfir öllum níu sakborningunum í Straumsvíkurmálinu svokallaða til 17. september. Þann dag verða tólf vikur liðnar frá því að mennirnir voru fyrst úrskurðaðir í gæsluvarðhald og því þarf að vera búið að gefa út ákæru fyrir þann dag.Í málinu var 106 kílóum af kókaíni smyglað til Íslands í sjókistu súrálsskips sem sigldi frá Brasilíu til Straumsvíkur. Sex erlendir ríkisborgarar eru í haldi, þar á meðal frá Rúmeníu og Brasilíu. Þá eru þrír Íslendingar í haldi. Þeir eru taldir hafa tekið við 30 af kílóunum 106 í iðnaðarhverfi í Kópavogi.Straumsvíkurhöfn.RÚV / Ragnar Visage
Varðhald framlengt í Straumsvíkurmáli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd