Umferðarreglurnar eiga að vera hluti af skólaundirbúningnum

Í fyrra slösuðust 112 börn undir 14 ára aldri í umferðinni. Þar af slösuðust 14 börn alvarlega og eitt lést. 41 var á reið- eða rafhlaupahjóli, 14 voru gangandi, 46 voru farþegar í bíl og hin ferðuðust með öðrum hætti. Ágúst Mogensen, forvarnasérfræðingur hjá Verði, segir að áhersla eigi að vera á að finna öruggustu leiðina í skólann og bera endurskinsmerki í myrkrinu. Foreldrar eigi að fara vel yfir umferðarreglurnar með börnum sínum.Ökumenn eigi að virða hraðatakmarkanir og fara mjög varlega við skóla, forðast að bakka þar og hleypa börnum helst alltaf út á gangstétt. Hafa verði í huga að lítið heyrist í rafbílum.Fréttastofa fylgdi Unni Signýju Hugadóttur, sem er alveg að verða sex ára, í skólann fyrsta skóladaginn. Unnur gerði allt eftir bókinni og kann umferðarreglurnar upp á tíu.
Umferðarreglurnar eiga að vera hluti af skólaundirbúningnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd