„Ég er með sorg í hjarta yfir því að við séum komin á þann stað að það sé einn sjónvarpsfréttatími. Við erum auðvitað líka fyrir nokkrum árum komin á þann stað að það er eitt prentað blað á Íslandi,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra um þau tíðindi að Sýn hafi hætt útsendingu kvöldfrétta.