Hagkerfið kólnar og erfiðara fyrir atvinnulausa að fá vinnu

Hægfara kólnun hagkerfisins heldur áfram. Arnaldur Sölvi Kristjánsson, lektor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir hagtölur sýna þetta. Hann segir þróunina svipaða og verið hefur síðustu misseri og að ekki sé um snöggkólnun að ræða.Landsframleiðsla dróst saman um 1,1% á öðrum ársfjórðungi samanborið við sama fjórðung í fyrra, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Áætlað er að landsframleiðsla hafi dregist saman um 3% að raunvirði á milli fjórðunga.Arnaldur segir halla á vöruviðskiptum einkum skýra samdráttinn. Það sé ekki síst vegna aukinna umsvifa í gagnaversiðnaði en þeim hefur fylgt mikil aukning í innflutningi. Á vef Hagstofunnar segir að met hafi verið sett á síðasta fjórðungi í fjárfestingu í gagnaverstengdum iðnaði.Arnaldur segir þetta ef til vill stærstu tíðindin í nýbirtum þjóðha
Hagkerfið kólnar og erfiðara fyrir atvinnulausa að fá vinnu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd