Stutt er þangað til Vaðölduver, fyrsta vindmylluver landsins, verður sett í gang. Allar fjórtán vindmyllur versins, sem rísa eiga á þessu ári, hafa verið settar upp og eru komnar í tækniprófun. Næstu skref verða að gangsetja vindmyllurnar.Alls verða vindmyllurnar 28 og ráðgert er að þær verði komnar í fulla framleiðslu fyrir lok 2027.Samkvæmt tilkynningu Landsvirkjunar byrja fyrstu myllurnar að framleiða raforku inn á kerfið um miðjan september.Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra setur svo verið formlega í gang við hátíðlega athöfn síðar í mánuðinum.Framkvæmdir við verið hófust í maí. Vindmyllurnar eru alls um 150 metra háar þegar spaðar þeirra eru í hæstu stöðu.