Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir tímabundna lækkun á olíuverði hafa lækkað vísitölu um hátt í 0,3 prósentustig. Hún hafi verið sett á þegar óljóst var hvernig olíuverðsþróun yrði. Olíuverðshækkanir hafi þó ekki orðið jafn miklar og ríkisstjórnin óttaðist í fyrstu.Ríkisstjórnin ákvað að lækka skatta á eldsneyti tímabundið til að draga úr verðbólgu eftir að árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran hófust í vor. Lækkunin rann út á miðnætti og olíuverð hækkaði um allt að 31 krónu.Forsætisráðherra segir miklu máli skipta að sýna olíufyrirtækjum áfram aðhald eftir að tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi á miðnætti. Eldsneytisverð hækkaði um tugi króna strax í nótt.Kristrún segir að það sem hafi keyrt verðbólguna áfram séu aðrir þættir þar sem olíuverð hafi bein áhrif, sem