Forseti Írans, Masoud Pezeshkian, þakkaði Vladimír Pútín Rússlandsforseta í dag fyrir stuðning síðustu mánuði í stríðinu í Mið-Austurlöndum. Þeir hittust á leiðtogafundi Sjanghæ-ríkjavettvangsins í Bishkek, höfuðborg Kirgistan. Þetta var fyrsti fundur forsetanna síðan Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran í lok febrúar.Íran og Rússland hafa átt í vopnaviðskiptum og síðan Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu 2022 hafa þeir eflt samstarfið við Írana enn frekar. „Við metum og þökkum þér fyrir afstöðuna á öllum stigum, bæði þann tíma sem átök hafa staðið og á rólegri tímum þegar Bandaríkin hafa beitt okkur refsiaðgerðum, bæði innan Sameinuðu þjóðanna og á alþjóðlegum vettvangi,“ sagði Pezeshkian við Pútín í morgun.Fundur þeirra var haldinn á leiðtogafundi Sjanghæ-ríkjavettvangsins (e. Shan