Andarnefja varð innlyksa í háflóði á Djúpavogi í morgun, rak á land í Brandsvík og hefur verið föst þar síðan. Íbúar hafa staðið í ströngu við að ausa yfir andarnefjuna sjó og standa vonir til að hún komi sér sjálf út í flóði. Um tíma virtist hvalurinn of örmagna til að bjarga sér sjálfur en er byrjuð að sprikla.