Landsréttur fellir frávísun á máli Skúla Tómasar úr gildi

Landsréttur felldi á fimmtudag úr gildi rúmlega mánaðargamlan úrskurð Héraðsdóms Suðurnesja þess efnis að manndrápsmáli gegn lækninum Skúla Tómasi Gunnlaugssyni skyldi vísað frá dómi. Málið verður því að óbreyttu tekið til aðalmeðferðar.Héraðssaksóknari ákærði Skúla fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn með því að hafa sett eldri konu í lífslokameðferð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að nauðsynjalausu. Fleiri slík tilvik voru til rannsóknar en að lokum var aðeins ákært fyrir eitt.Héraðsdómur Reykjaness vísaði málinu frá 21. júlí með þeim rökum að Skúla hefði þegar verið gerð refsing þegar embætti landlæknis svipti hann starfsleyfi vegna málsins í janúar 2021.Landsréttur er ósammála héraðsdómi um þetta, og kemst að þeirri niðurstöðu að stjórnsýsluákvörðun um réttindasvipti
Landsréttur fellir frávísun á máli Skúla Tómasar úr gildi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd