Andanefju rak á land á ströndum Brandsvíkur við Djúpavog á Austurlandi í dag. Hún er á lífi en þó særð. Vonir standa til að hægt verði að koma henni aftur út á sjó.Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að hvalreki séu ekki óalgeng á þessum slóðum og unnið sé að því að koma henni aftur út í sjó.Í myndbandinu hér að neðan, sem Birkir Fannar tók og sendi fréttastofu, má sjá hvar unnið er að því að halda andanefjunni kaldri og rólegri með því að hella á hana sjó og hafa á henni blaut handklæði.Andanefju rak á land í Brandsvík við Djúpavog. Hún er á lífi og vonir standa til að hægt verði að koma henni aftur út á sjó.