Nýjum konungi fagnað með lúðraþyt

Hákon áttundi sór í morgun eið sem næsti Noregskonungur. Þar með hefur hann formlega tekið við völdum af föður sínum, Haraldi, sem lést á föstudag. Athöfnin var í norska Stórþinginu og henni stjórnaði forseti þingsins.Þingforsetinn minntist Haraldar og sagði hann hafa verið tákn alls þess besta í Noregi. Ingiríður Alexandra, dóttir konungshjónanna sem er 22 ára, er formlega orðin krónprinsessa.Við athöfnina lofaði Hákon að stjórna Noregi í samræmi við stjórnarskrá og lög. Hákon var ekki krýndur formlega með kórónu. Kórónan er nú við kistu Haraldar. Sú hefð að krýna nýjan konung var lögð niður eftir að langafi Hákonar og nafni var krýndur 1905. Stuttu eftir það voru ákvæði um krýningarathöfn tekin úr stjórnarskránni.Hér má sjá svipmyndir frá athöfninni í morgun:Mikið var um dýrðir í Noregi
Nýjum konungi fagnað með lúðraþyt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd