Starfsmönnum G. Hjálmarssonar á Akureyri brá heldur betur í brún í morgun þegar þeir mættu til vinnu. Tvær beltagröfur og einn vörubíll sem fyrirtækið á hafði verið skemmt í nótt. Spreyjað hafði verið með rauðu og svörtu olíu- eða lakkspreyi á tækin. Orð á borð við „aumingi“ og „öfund“ höfðu verið spreyjuð á gröfurnar.Hjálmar Guðmundsson, einn eiganda G. Hjálmarssonar, sagði í samtali við fréttastofu að tjónið geti hlaupið á milljónum króna: „Það er búið að prófa að ná þessu af og þetta fer illa af. Þetta er einhverskonar olíulakk en ekki hefðbundið merkisprey.“ FARIÐ AÐ BERA Á FLEIRI SKEMMDARVERKUM OG ÞJÓFNAÐI Skemmdarverkin voru unnin á vélum fyrirtækisins sem voru upp í Móahverfi, hverfi norð-vestast á Akureyri sem er verið að byggja upp. G. Hjálmarsson hefur verið þar undanfarin fjö