Mette-Marit Noregsdrottning glímir við fylgikvilla eftir lungnaígræðslu í júní og getur því ekki verið viðstödd þegar eiginmaður hennar, Hákon konungur, sver embættiseið í dag. NRK, norska ríkissjónvarpið, greinir frá því að hún hafi glímt við fylgikvilla vegna lungnaígræðslunnar, sem þó gekk vel. Fram kemur í yfirlýsingu lungnalæknisins Are Hom að drottningin finni fyrir fylgikvillunum í dag og verði því undir eftirliti lækna.Hákon sver embættiseið klukkan 11.00 að íslenskum tíma. Börn hans, Ingiríður Alexandra krónprinsessa og Sverrir Magnús prins, verða viðstödd, auk Sonju drottningar. Mynd tekin í gær, 31. ágúst. Mette-Marit Noregsdrottning, Sonja drottning, Marta Lovísa prinsessa og Hákon konungur lögðu blóm á torgið við konungshöllina til minningar um Harald konung sem lést á föstuda