Nýjustu niðurstöður úr vöktun moskítóflugna í hesthúsi í Ölfusi eru jákvæðar, að sögn Náttúrufræðistofnunar.„Við síðustu sýnatöku fundust þar engar moskítóflugur, í fyrsta sinn frá því þær fundust í hesthúsinu haustið 2025. Vöktun verður þó haldið áfram, bæði inni í hesthúsinu og í nágrenni þess, til að fylgjast með hvort flugurnar komi aftur fram,“ segir á vef stofnunarinnar. REYNT AÐ DRAGA ÚR STOFNINUM Flugurnar fundust í hesthúsinu í lok október 2025 og fjölbreyttum aðferðum var beitt til að draga úr stofninum.„Flugum hefur verið safnað handvirkt, með sérstakri moskítóryksugu og með gildrum af gerðinni BG-Sentinel, sem seyta frá sér koltvísýringi og lyktarefni sem laða flugurnar að. Jafnframt voru uppeldisstöðvar flugnanna meðhöndlaðar með sílikonefni sem myndar himnu á vatnsyfirborð