Eldur logar í bíl á Reykjanesbraut, skammt frá Arnarnesvegi. Þetta staðfestir Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Útkall barst fyrir tæpum 20 mínútum.Einn slökkvibíll var sendur á vettvang. Að sögn Stefáns rýkur enn úr bílnum sem hefur verið komið fyrir á umferðareyju.Að sögn sjónarvotta hafa myndast talsverðar umferðartafir vegna þessa en Stefán segir að umferð komist nú greiðlega framhjá.RÚV / Ragnar Visage