Gasmengun yfir heilsuverndarmörkum vegna nýs hlaups í Múlakvísl

Rafleiðni í Múlakvísl hefur mælst há miðað við árstíma síðustu sólarhringa. Það bendir til þess að jarðhitaleki sé í gangi í ánni, líkt og gerðist 19. ágúst. Líkt og þá hefur vatnshæð ekki hækkað en það gæti þó gerst á næstunni. Samkvæmt upplýsingum frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar fylgir mikil gasmengun þessu nýjasta hlaupi í ánni og brennisteinsvetni mælist yfir heilsumörkum. Varhugavert er að staldra við nálægt Múlakvísl eða upptökum hennar við jökuljaðarinn. Aðstæður eru þannig að gas safnast upp í lægðum í landslagi. Ef fólk finnur fyrir einkennum, svo sem sviða í nefi eða augum, á að yfirgefa svæðið strax.Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram með mælingum á svæðinu og sendir út nýjar upplýsingar ef breytingar verða.
Gasmengun yfir heilsuverndarmörkum vegna nýs hlaups í Múlakvísl

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd