Bjart hæglætisveður

Hæglætisveður tekur við landsmönnum víðast hvar að morgni þessa þriðjudags. Þó gæti rignt aðeins á fólk norðaustan og austan til fram yfir hádegi og síðdegis gæti rignt aðeins á fólk sunnanlands.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðan 5-10 metrar á sekúndu austast á landinu, en annars hægari breytileg átt. Dálítil rigning eða súld norðaustan- og austanlands fram yfir hádegi, annars víða bjart, en síðdegisskúrir syðst. Hiti 7 til 14 stig, en 4 til 9 stig austanlands. Allvíða líkur á næturfrosti á Norðaustur- og Austurlandi.Austanátt á morgun, allhvass syðst undir kvöld, annars mun hægari. Skýjað, en fer að rigna sunnantil, rigning seint annað kvöld. Hlýnandi veður.
Bjart hæglætisveður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd