Fá yfirráð yfir 17 olíuvinnslusvæðum til 100 ára

Bandaríska olíufyrirtækið North American Blue Energy Partners (NABEP) kemur til með að taka yfir 17 olíuvinnslusvæði í Venesúela, samkvæmt olíusamningi sem Bandaríkin og Venesúela gerðu nýverið.AP-fréttaveitan segir að fyrirtækið sé í eigu Venesúelamanns, Alejandro Betancourt, og fyrirtækið er nú þegar annað stærsta olíuvinnslufyrirtæki í Venesúela á eftir Chevron. Fyrirtækið fær réttindi til að vinna olíu á umræddum svæðum til 100 ára.Samningurinn veitir Bandaríkjunum yfirráð yfir um fimmtungi olíubirgða Venesúela, 35% hlut og neitunarvaldi í fyrirtækinu. Bandaríkin fá auk þess rétt til að kaupa um 20% olíuframleiðslunnar á kostnaðarverði.Mörg þessara olíuvinnslusvæða sem samningurinn nær til hafa áður verið nýtt af rússneskum og kínverskum fyrirtækjum.Nokkrir bandarískir þingmenn hafa ka
Fá yfirráð yfir 17 olíuvinnslusvæðum til 100 ára

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd