Lögregla við störf á vettvangi eftir árás á birgðastöð í útjaðri Kyiv, 29. ágúst sl. Myndin tengist fréttinni óbeint.AP / Dan BashakovÁtta hið minnsta voru drepnir og fimm særðust í miklum árásum rússneska hersins á Kyiv í nótt.Einn drepinn í Boryspil í Kyiv-héraði samkvæmt upplýsingum frá úkraínska hernum. Úkraínski herinn gaf út viðvaranir í gær vegna yfirvofandi flugskeytaárása.Þá kviknaði eldur í rússnesku hafnarborginni Ust-Luga við Finnlandsflóa eftir drónaárás Úkraínuhers. Héraðsstjórinn í Leningrad-héraði, Aleksandr Drozdenko, greindi frá árásinni í færslu á Telegram.Úkraínuher hefur áður gert árásir á höfnina, fyrr á þessu ári. Ust-Luga er ein mikilvægasta stórskipahöfn Rússa og þaðan er flutt olía, kol og áburður.