Dönsk stjórnvöld hafa opnað sendiráð að nýju í Sýrlandi eftir 14 ára fjarveru. Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur og utanríkisráðherra Sýrlands, Asaad al-Shaibani, opnuðu danska sendiráðið í Damaskus í gær.Danir og fleiri Evrópuþjóðir lokuðu sendiráðum sínum í landinu og slitu stjórnmálasambandi við ríkisstjórn Sýrlands og Bashar al Assad, þáverandi leiðtoga landsins, þegar hann beitti mótmælendur miklu harðræði í mótmælum árið 2011.Borgarastríð hófst í kjölfar mótmælanna og fjölmörgum erlendum sendiráðum var lokað upp frá því vegna ótryggs öryggisástands í landinu. Ný stjórnvöld í Sýrlandi, undir forystu Ahmed al-Sharaa forseta Sýrlands, hafa unnið að því að styrkja diplómatísk tengsl við aðrar þjóðir.Tyrkland og Katar voru fyrstu þjóðirnar til að opna sendiráð að nýju sköm