Hnífaárás á Times-torgi í New York

Lögregla við störf á vettvangi árásarinnar.AP/WABC / UncreditedKona á fertugsaldri var drepin og karlmaður á sjötugsaldri særðist í hnífaárás á Times-torgi í New York í gær.Ekki er talið að um hryðjuverk sé að ræða en árásarmaðurinn, kona á fimmtugsaldri, er sögð vera andlega veik. Hún var vopnuð tveimur hnífum og áreitti fólk áður en hún stakk fórnarlömbin tvö af handahófi.Vitni lýsti því að konan hafi ógnað lögreglumönnum þegar þeir reyndu að stöðva hana. Hún hunsaði fyrirmæli lögreglu sem endaði með því að hún var skotin og lést síðar á spítala.Lögreglustjóri sagði að mikil hætta hefði skapast á torginu því mikill fjöldi fólks á leið um torgið á hverjum degi.
Hnífaárás á Times-torgi í New York

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd