Ráðherra bandaríska hersins segir af sér

Ráðherra bandaríska hersins, Dan Driscoll, hefur beðist lausnar úr embætti. Hvíta húsið hefur staðfest að Driscoll hafi sagt af sér embætti.Anna Kelly, aðstoðarfjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, var spurð út í ástæður uppsagnarinnar af fjölmiðlafólki en gaf ekkert upp um þær. Kelly sagði að Driscoll hefði sinnt vel áherslumálum forsetans í varnarmálum. Hann hefði sýnt framúrskarandi leiðtogahæfni í hernaðaraðgerðum Bandaríkjahers og meðal annars komið að samningaviðræðum milli Rússlands og Úkraínu.Ef uppsögn Driscoll verður samþykkt þá bætist hann í hóp háttsettra herforingja sem hafa farið úr embætti í stjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.The Wall Street Journal greindi fyrst frá uppsögn Driscolls. Fjölmiðillinn segir ástæðuna vera ágreining milli Pete Hegseth varnarmálaráðherra og Drisc
Ráðherra bandaríska hersins segir af sér

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd