Lægri framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga urðu til þess að fjárhagsáætlun Borgarbyggðar stenst ekki og fresta þarf framkvæmdum. Sveitarstjóri segist undrandi því breytingar á Jöfnunarsjóði hefðu átt að styrkja rekstur víðfeðmra sveitarfélaga eins og Borgarbyggðar.„Eins og þetta var kynnt fyrir okkur þá gerðum við ráð fyrir aukningu framlaga til sveitarfélagsins en raunin er sú að það er samdráttur í framlögum, og sveiflan er um 300 milljónir,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar.Framlög úr Jöfnunarsjóði eru um 30% af skatttekjum Borgarbyggðar. Ný lög um Jöfnunarsjóð voru samþykkt í fyrra sumar. Unnur segir þetta þvert á það sem kynnt var þegar frumvarpið fór í gegnum þingið.„Lögin voru með það markmið að styrkja rekstrarforsendur víðfeðmra fjölkjarna sveitarfélaga