Lítill tími til að ákveða örlög kjarasamninga

„Hljóðið í fólki er náttúrulega frekar þungt,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR um fund samninganefnda verkalýðsfélaganna VR, LÍV og fagfélaganna. Fundurinn hófst klukkan hálf sex í kvöld. Hann sitja hátt í 60 manns frá fimm samninganefndum. Þar eru meðal annars rædd örlög kjarasamninga eftir að forsendur þeirra brustu þegar ársverðbólga mældist 5,6% í ágúst. Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði kváðu á um að segja mætti þeim upp ef verðbólga færi yfir 4,7% í ágúst.„Kjarasamningsbundin laun hafa hækkað minna en verðbólga og fólk situr uppi með mjög mikinn húsnæðiskostnað sem hefur aukist á tímabili gildandi kjarasamninga. Þetta er sú staða sem við þurfum að takast á við næstu vikurnar,“ sagði Halla í sjónvarpsfréttum. LÍTILL TÍMI TIL STEFNU Halla segir fundarmenn velta fyrir sér
Lítill tími til að ákveða örlög kjarasamninga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd