„Í fréttum okkar áðan sögðum við takk, við sögðum ekki bless“

Síðasti sjónvarpsfréttatími Sýnar, áður Stöðvar 2, var sendur út í kvöld. Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, sagði daginn hafa verið tilfinningaríkan.„Að lesa tímann var mögulega aðeins erfiðara en venjulega,“ segir Kolbeinn Tumi sem sagði að styttra hefði verið í tilfinningar og tár en yfirleitt.„En mikill heiður og það hefur verið mikill heiður að lesa hvern einasta fréttatíma sem ég hef lesið hérna,“ segir hann.Hann segir að hugur hans og annarra sé hjá þeim starfsmönnum sem breytingarnar höfðu áhrif á. 10 starfsmönnum var sagt upp í tengslum við breytinguna.„Við erum þéttur hópur og það er erfitt að missa mjög gott fólk sem hefur skilað frábæru starfi,“ segir Kolbeinn Tumi.Síðasti sjónvarpsfréttatími Sýnar var í kvöld sendur út. Með honum lauk 40 ára sögu sjónvarpsfrét
„Í fréttum okkar áðan sögðum við takk, við sögðum ekki bless“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd