Rúm tvö ár eru síðan ríkið, sveitarfélög í Eyjafirði og Verkmenntaskólinn á Akureyri skrifuðu undir samning um 1500 fermetra viðbyggingu við skólahúsnæðið á Akureyri. Framkvæmdir eru ekki farnar af stað og í haust þurfti VMA að bregða á það ráð að leigja húsnæði af Akureyrarbæ.„Það var bara ekki hægt að koma fyrir þeim nemendafjölda. Við fengum mjög marga nýnema núna þannig við leituðum til Akureyrarbæjar. Þau tóku mjög vel í erindið og á endanum komumst við á þessa niðurstöðu,“ segir Benedikt Barðason, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri VONAST TIL AÐ MÁLIÐ VINNIST HRATT Í HAUST 270 nýnemar hófu nám við VMA í haust og er húsnæði skólans löngu sprungið. Mikil áskorun hefur verið að koma fyrir öllum þeim nemendafjölda sem sækir skólann en nemendur eru um 1300 talsins. Það verða an