Frá og með morgundeginum mega allir einstaklingar gefa blóð óháð kyni eða kynhneigð. Þá tekur gildi ný reglugerð Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra „Við aukum öryggi blóðþega og stækkum hóp blóðgjafa. Verklagsreglur verða skýrar um að óheimilt sé að vísa blóðgjöfum frá á grundvelli kynhneigðar en skýr skilyrði sett um ábyrga kynhegðun allra blóðgjafa, óháð kynhneigð og kyni,“ segir Alma í tilkynningu. Í fyrstu grein reglugerðarinnar er sérstaklega tekið fram að markmið hennar sé að blóðgjöfum sé ekki mismunað á grundvelli ómálefnalegra sjónarmiða líkt og kyns þeirra, kynhneigðar, uppruna eða stöðu að öðru leyti. Þó er skilgreint viðmið um áhættusamt kynlíf sem leitt getur til tímabundinnar frávísunar blóðgjafa vegna aukinna líka á smiti alvarlegra smitsjúkdóma í gegnum blóð. Viðmiðið er óh