Íslenskir lögreglumenn fóru til Spánar fyrir helgi og sóttu mann sem setið hefur í gæsluvarðhaldi þar í landi í tengslum við rannsókn á andláti á Kársnesi í Kóopavogi fyrr í mánuðinum.Sakborningurinn, sem er pólskur ríkisborgari, var handtekinn á Spáni og hafði setið í gæsluvarðhaldi þar í rúmar tvær vikur. Maðurinn kom til landsins í fylgd lögreglu seint á föstudagskvöld og er nú gæsluvarðhaldi hér á Íslandi. Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar.Tveir eru gæsluvarðhaldi vegna málsins, auk mannsins sem sóttur var frá Spáni, situr annar pólskur maður í varðhaldi í Póllandi en lögregla vinnur að því að koma honum til landsins.Mennirnir eru í haldi vegna manndráps á Kársnesi í Kópavogi þann 9. ágúst. Maðurinn sem lést var pólskur rík