Samgöngustofa hefur aflétt farbanni yfir skipinu Bandero, sem er í eigu Paul Watson og var notað til að trufla hvalveiðar í sumar.Íslensk yfirvöld tóku yfir stjórn skipsins í júlí eftir að áhöfn Bandero sigldi án heimildar inn fyrir tólf mílna lögsögu landsins og ógnaði öryggi skipverja hvalveiðiskipsins Hvals 9. Skipið hefur síðan verið við höfn í Reykjavík og á Akranesi.Bjarni Már Magnússon, lögmaður samtaka Paul Watson (Captain Paul Watson foundation), segir að farbanni skipsins hafi verið aflétt eftir að öllum nauðsynlegum pappírum var komið til Samgöngustofu.Í síðustu viku hafi eftirlitsmaður með umboð frá stjórnvöldum í Panama komið og skoðað Bandero. Skipið siglir undir panamíska fánanum.Gefið var út nýtt alþjóðlegt mælibréf fyrir skipið eftir heimsóknina og voru einnig sett um borð