Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri RÚV, segir ákvörðun Sýnar um að hætta að senda út fréttir í sjónvarpi vera afskaplega vond tíðindi fyrir samfélagið í heild sinni. Þetta séu ekki síður vond tíðindi fyrir fréttafólkið á RÚV sem hafi nú enga samkeppni og þar með minna aðhald og fjölbreytni.