Um 4.000 manns saknað eftir hamfarirnar í Nepal – líkhús hafa ekki undan

„Ég vil leggja áherslu á að orðið „flóð“ nær varla að lýsa ástandinu á þessum erfiðu tímum,“ sagði Lok Bahadur Poudel talsmaður utanríkismála í Nepal þegar hann veitti fjölmiðlum upplýsingar um stöðu mála eftir hamfarirnar sem dundu yfir landið á miðvikudag. Það þarf ekki annað en að skoða myndskeið og myndir til að sjá að það eru orð að sönnu.Staðan núna er að 3.925 manns er saknað, en þeim fækkaði nokkuð í nýrri tilkynningu sem kom eftir hádegið. 939 hafa fundist látnir og ekki hefur tekist að bera kennsl á þá alla. Yfir 2.500 byggingar eyðilögðust sem eru tvær af hverjum þremur byggingum á þeim þremur landssvæðum sem Copernicus, veðurfræðistofnun Evrópu, hefur skoðað. Kraftur flaumsins var slíkur að minnst 17 lík bárust alla leið til Indlands áður en þau fundust.Óhemju stórar björgunara
Um 4.000 manns saknað eftir hamfarirnar í Nepal – líkhús hafa ekki undan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd