Byggja nýja sundlaug í Lundi í Öxafirði

Fresta þurfti ýmsum framkvæmdum í vor í Norðurþingi vegna óvissu um fjárhagsstöðu bæjarsins eftir fráhvarf PCC frá Bakka. Þá settu málaferli gegn hvalaskoðunarfyrirtækjum fjárhag sveitarfélagsins í uppnám. Hjálmar Bogi Hafliðason, þáverandi oddviti sveitarstjórnar, sagði að skynsamlegast væri að fresta ákveðnum framkvæmdum til að binda ekki hendur nýrrar sveitarstjórnar.Ný sveitarstjórn hefur hafið störf og sett ýmislegt á framkvæmdaáætlun. Meðal annars nýtt laugarkar í Lundi í Öxafirði.„Við gerum ráð fyrir því að gamla laugin verði rifin og það verði reist þarna nýtt laugarkar. Og búnaðurinn sem tilheyrir lauginni og kerfið í kringum hana, það verði byggt sérstakt aðstöðuhús á lóð laugarinnar fyrir það. Þannig við erum líka að gera úrbætur á því,“ segir Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti
Byggja nýja sundlaug í Lundi í Öxafirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd