Stefna að þrýstiprófunum á Eyjalögninni

Unnið er að undirbúningi þrýstiprófana á NSL-4 neysluvatnslögninni til Vestmannaeyja. Stefnt er að því að hefja þær í þessari viku.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.Lögnin, sem hefur verið nefnd almannavarnalögn, skemmdist fyrr í mánuðinum þegar verið var að leggja hana.Það er fyrirtækið Subsea 7 sem sá um útlagningu og enn er beðið eftir lokaskýrslu frá því vegna tjónsins.Undirbúningur þrýstiprófana er gerður í samráði við framleiðanda lagnarinnar, NOV. „Framkvæmdalýsing hefur verið lögð fyrir og samþykkt af NOV,“ segir á vef bæjarins.Markmið prófananna er að afla upplýsinga um ástand lagnarinnar og sjá hvernig hún bregst við þegar hún er sett undir álag.„Tryggingafélögum hefur verið gerð grein fyrir fyrirhuguðum aðgerðum og þau eru upplýst um framgang málsins.“ AÐALLÖG
Stefna að þrýstiprófunum á Eyjalögninni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd