Sögulegur dagur hjá Sýn eftir tíðindamikla viku þar sem hætt var við milljarða viðskipti

„Þetta eru bara gríðarleg vonbrigði. Ég held að þetta séu mistök, ég held að þarna sé fólk að taka ákvarðanir sem skilji ekki fréttir,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, um þá ákvörðun stjórnenda Sýnar að hætta með sjónvarpsfréttir.Sýn greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallar Íslands núna í morgun. Síðasti kvöldfréttatími Sýnar verður í kvöld. Tíðindin hafa vakið mikla umræðu í samfélaginu og sætt gagnrýni.Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu kvöldfrétta á Sýn og hjá fyrrirennara Sýnar,  Stöð 2. Fyrsti fréttatíminn á Stöð 2 var sendur út þann 9. október árið 1986.Þessi ákvörðun Sýnar að hætta með sjónvarpsfréttir kemur í kjölfar annarrar ákvörðunar sem er mikilvæg í þessu samhengi.Fyrir viku var tilkynnt að Sýn myndi ekki selja hluta fjölmiðla sin
Sögulegur dagur hjá Sýn eftir tíðindamikla viku þar sem hætt var við milljarða viðskipti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd