Þrjú ungmenni létust í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði skömmu eftir miðnætti í nótt. Tilkynning um slysið barst kl. 0.19, segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. Ungmennin, piltur og tvær stúlkur, voru öll í bifreið sem hafnaði utan vegar. Henni var ekið suður Krýsuvíkurveg, nærri Bláfjallavegi, þegar slysið varð. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. Vettvangur slyssinsÞau óku Krýsuvíkurveg...