Marius Borg Høiby fær að vera viðstaddur jarðarför Haraldar konungs. Hann sætir stofufangelsi eftir að hafa verið sakfelldur fyrir tvær nauðganir og 32 önnur brot. Fangelsismálayfirvöld hafa gefið honum leyfi til að mæta í jarðarförina.Høiby er sonur Mette-Marit drottningar og stjúpsonur Hákons konungs. Hann fékk leyfi til að fara á Ríkisspítalann í Ósló þegar Haraldur konungur lá fyrir dauðanum og aftur þegar lík hans var flutt í kapellu konungshallarinnar.Høiby hlaut fjögurra ára fangelsisdóm í júní. Hann áfrýjaði dóminum og sætir stofufangelsi þar til niðurstaða fæst á næsta dómstigi. Haraldur konungur verður jarðsunginn á miðvikudag í næstu viku.