„Á tímum þar sem upplýsingaóreiða og hálfsannleikur veður uppi í gegnum samfélagsmiðla þá er þetta auðvitað mjög sorglegt og leiðinlegt að horfa upp á að það sé núna ekki samkeppni á sjónvarpsfréttamarkaðnum.“Þetta segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, um þær fregnir að Sýn hafi ákveðið að hætta með fréttatíma í sjónvarpi. Hann segir þetta dapurlegt en þörfin fyrir áreiðanlega og ritstýrða fjölmiðla hafi aldrei verið meiri.Logi segir greinilegt að staðan á fjölmiðlamarkaði sé bæði viðkvæm og erfið. „Þetta er auðvitað búið að blasa við í mjög langan tíma“Hann segir að íslenski markaðurinn sé smár en hann glími einnig við erfiðar alþjóðlegar áskoranir sem stærri ríki eiga einnig við.Logi segir að það hafi verið sett í forgang þegar hann tók við ráðuneyti sínu að l