Enginn í gæsluvarðhaldi vegna innbrotsins í Dalsbú

Enginn er í gæsluvarðhaldi vegna innbrotsins í minkabúið í Dalsbú í Mosfellsbæ í lok síðasta mánaðar. Lögregla hefur handtekið og yfirheyrt einstaklinga sem hefur síðan verið sleppt.Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir, stöðvarstjóri lögreglustöðvarinnar á Vínlandsleið. Hún vildi ekki gefa upp hversu margir hefðu verið yfirheyrðir í tengslum við málið. Rannsóknin væri opin og unnið væri að því að fara yfir síma- og tölvugögn. Lítið væri hægt að gefa upp um rannsóknina að svo stöddu.Nokkur þúsund minkar sluppu úr minkabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal þann 29. júlí. Þar af sluppu nokkur hundruð dýr út í gegnum varnargirðingar í kringum búið sem voru aflífuð. Mikill viðbúnaður var í Mosfellsbæ vegna þess.Lögregla hefur rannsakað málið undanfarinn mánuð. Þetta var í þriðja sinn á stuttum tíma
Enginn í gæsluvarðhaldi vegna innbrotsins í Dalsbú

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd