Nokkrum starfsmönnum RÚV var sagt upp fyrir helgi og ákveðið hefur verið að ráða ekki í störf sem losna vegna starfsmannaveltu.Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir að þetta sé hluti af hagræðingu í rekstri Ríkisútvarpsins. Mikil verðbólga í ár og horfur á næsta ári hafi orðið til þess að óhjákvæmilegt væri að hagræða og fækka starfsfólki.Starfsmönnum fækkar um sem nemur tíu til fimmtán stöðugildi. Það gerist að stórum hluta með því að ráða ekki í stöður sem losna vegna hefðbundinnar starfsmannaveltu. Stefán segir að þó hafi verið óhjákvæmilegt að segja upp starfsfólki og það hafi verið gert fyrir helgi.