Svissneskur maður hefur verið handtekinn í tengslum við skotárásina í Aarau nærri Zürich í Sviss í fyrrinótt.Lögreglan í Aarau segir að viðkomandi sé sterklega grunaður um að hafa staðið að árásinni þar sem einn var drepinn og fimm til viðbótar særðir. Hún segir jafnframt að talið sé að hann hafi verið einn að verki. Ekkert er gefið upp um hugsanlegar ástæður fyrir árásinni.Skotárásin átti sér stað í rave-partýi í bænum. Þetta var fyrsta skotárásin í landinu í 25 ár.