Uppsagnir og starfsmenn Sýnar boðaðir á fund

Uppsagnir eru í farvatninu hjá fréttastofu Sýnar, einkum meðal starfsfólks sem kemur að framleiðslu og flutningi frétta í sjónvarpi. Þetta kemur fram í skilaboðum Herdísar Drafnar Fjeldsted, forstjóra Sýnar, til starfsfólks frá því í dag.Greint var frá því fyrr í dag að Sýn sendi sinn síðasta fréttatíma út í kvöld. Þá hættir þátturinn Ísland í dag enn fremur.„Ákvörðunin hefur því miður í för með sér fækkun starfa hjá Sýn, einkum meðal starfsfólks sem kemur að fréttaframleiðslu og fréttaflutningi í sjónvarpi. Samtöl við þau sem breytingarnar varða fara fram í kjölfar þessarar tilkynningar,“ skrifar Herdís í skilaboðum til starfsfólks.Boðað verður til starfsmannafundar síðar í dag þar sem farið verður yfir málið.„Þetta verður erfiður dagur fyrir starfsfólk Sýnar, en fyrst og fremst fyrir þau
Uppsagnir og starfsmenn Sýnar boðaðir á fund

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd