Alvarlegt umferðarslys varð á Krýsuvíkurvegi við Bláfjallaveg í nótt. Þetta staðfestir Ásdís Haraldsdóttir, lögreglufulltrúi á lögreglustöð 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ. Hún vildi ekki veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu en fréttatilkynningar um málið er að vænta innan skamms.