Samdráttur í íslensku efnahagslífi á öðrum ársfjórðungi

Landsframleiðsla dróst saman á öðrum ársfjórðungi en fyrri helmingur ársins eru þó enn í plús vegna þess hversu mikið landsframleiðsla jókst á fyrsta ársfjórðungi.Þetta er niðurstaða nýrra útreikninga Hagstofunnar sem voru birtir í dag.Samdrátturinn á öðrum ársfjórðungi var 1,1 prósent og fylgdi á eftir 3,8 prósenta hagvexti á fyrsta ársfjórðungi. Samanlagt er hagvöxtur á fyrri helmingi árs því 1,3 prósent.Þetta er þriðja skiptið í röð sem samdráttarársfjórðungur fylgir á eftir ársfjórðungi með hagvexti.Vöruviðskipti við útlönd ráða mestu um samdráttinn á öðrum ársfjórðungi. Aukinn halli á vöruviðskiptum miðað við sama tíma í fyrra olli því að áhrif utanríkisviðskipta á hagvöxt voru neikvæð um 2,9 prósent.Hagstofan reiknar einnig landsframleiðslu með hliðsjón af árstíðabundnum þáttum. Samk
Samdráttur í íslensku efnahagslífi á öðrum ársfjórðungi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd