„Það er bara gaman og kemur smá á óvart,“ segir hinn 24 ára Markús Máni Skúlason þegar blaðamaður tjáir honum að hann sé yngsti karlmaður hátekjulistans í ár. „[Það er] frekar athyglisvert. Ég var ekki beint að gera ráð fyrir því.“ Markús er fæddur árið 2002 og er með 50.673.146 krónur í árstekjur. Hann prýðir því 1.768. sæti listans. „Þetta...