Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í gær þekktum fréttamanni NBC hugsanlegum viðurlögum af hálfu bandarískra fjölmiðlayfirvalda. Forsetinn sagðist ósáttur við umfjöllun um árangur frambjóðenda sem hann hefur lýst stuðningi við fyrir þingkosningarnar í nóvember. Trump réðst á Kristen Welker á samfélagsmiðlinum Truth Social og kallaði hana „óvinsælan ‘þáttastjórnanda’ hins áður frábæra spjallþáttar Meet the Press“. Hann mótmælti því að hún hefði...