Bandarískir notendur landakortavefsins Google maps gætu þurft að leita lengi á landakorti Google að Ontario-vatni – leiti þeir þess – því nafni vatnsins hefur verið skipt út fyrir Ameríkuvatn á kortavefnum og í smáforriti.Donald Trump Bandaríkjaforseta undirritaði forsetatilskipun á fimmtudaginn um að vatnið skyldi endurnefnt Ameríkuvatn og uppfæra þarf öll opinber gögn í Bandaríkjunum samkvæmt þessu innan 30 daga.Tæknirisinn Google brást fljótt við, rétt eins og þegar Trump breytti nafni Mexíkóflóa í Ameríkuflóa á síðasta ári. ONTARIO-VATN BIRTIST ÁFRAM KANADÍSKUM NOTENDUM Ontario-vatn mun áfram birtast á Google landakortinu hjá kanadískum notendum. Restin af heimsbyggðinni sér svo bæði nöfnin á kortinu samkvæmt Google. Enn sem komið er hefur Apple ekki breytt nafni vatnsins, sem enn h